HilmaR..!

The Master OF Disaster..!

12.11.2007 12:38:58 / HilmaR..!

OhhNooo..!

 

Fyrir ekki alls löngu gerðum ég og Magnús vinur minn samkomulag.. Þannig er mál með vexti að ég held óheyrilega mikið með Liverpool en hann með Man.Utd ! Í byrjun tímabils var ég rosa bjartsýnn með mitt lið þar sem þeir höfðu unni fyrstu 3 leikina sína nokkuð örugglega en Man Utd ekki átt góða byrjun..

Á góðu laugardagskvöldi gerðum við þennan ákveðna díl og hann hljómaði þannig að ef Man Utd yrði meistari myndi ég tatto-era Man.Utd eða MUFC á ökklann en ef Liverpool yrði meistari myndi hann fá sér LFC á ökklan.. :)

Síðan þessi díll var gerður hefur Liverpool gert mörg jafntefli en er þó enn ósigrað í deildinni en Man Utd er hinsvegar komið á toppinn í deildinni :/

Ég hef mikin áhuga á að bæta fleiri húðflúrum á líkamann en þessa 4 stafi hef ég engan áhuga á að hafa..!! Liverpool hefur hinsvegar verið á réttu brautinni undanfarið, meðal annars settu þeir met í Meistaradeildinni með því að vinna Besiktas 8-0 og unnu Fulham um helgina 2-0.. :D

En við verðum bara að spenna greipar og vona að Liverpool vinni eða að það næst versta gerist og Arsenal vinni deildina..:/

Staðan einsog er..

  1. Man.Utd.       13  9  3  1  23:6   30
2. Arsenal 11 8 3 0 24:9 27
3. Man.City 13 8 2 3 16:13 26
4. Chelsea 13 7 4 2 19:9 25
5. Liverpool 12 6 6 0 19:6 24
6. Portsmouth 13 6 5 2 23:13 23
7. Blackburn 12 6 4 2 15:11 22
8. Aston Villa 12 6 3 3 18:14 21
9. Everton 13 6 2 5 19:15 20
10. West Ham 12 5 3 4 18:10 18

 

 


VS.

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 21:41:21 / HilmaR..!

Hjálmar..

 

Ég hef nú ákveðið þar sem ég hef eignast alltof mikinn frítíma að rita nokkur orð hér þegar mér dettur eitthvað í hug.. Held samt að bloggið sé alveg out..

En allavega þá skellti ég mér á tónleika á laugardaginn.. Magnús vinur minn er forfallinn Hjálma aðdáandi og vildi fara á tónleikana.. Ég hef nú ekki hlustað mikið á þá en ákvað að fara með honum ásamt 2 öðrum..

Ég verð nú bara að segja eitt.. þeir komu mér skelfilega mikið á óvart! Ég hafði aldrei séð þá Live og þetta var SNILLD..! Rosalega sterkir á sviði og suddalega flott tónlist..

Trommuleikarinn hjá þeim er nýr held ég og passar vel inní og er svakalegur trommari líka..! Einsog þeir kalla hann í sveitinni, Duracell-Górillan þá passar það vel við hann.. hann var ofvirkur á trommurnar..

Eftir tónleikana fórum við til strákanna og tjilluðum þar.. kíktum aðeins niðrí bæ en það var skammlíft..

Maður dagsins..; ég sjálfur fyrir að gera 4 njálu ritgerðina á minni ævi í dag.. :D (fyrir suma) :) hehe..

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 14:57:49 / HilmaR..!

F A C E B O O K

 

Mæli með FACEBOOK..!

www.facebook.com 

:D 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 20:48:19 / HilmaR..!

Nýtt.. Ahh..

Jæja ég er að pæla að kannski lífga uppá þessa síðu.. :) 

Og kannski fá mér myspace? Þar sem allir eru ekki ennþá búnir að ná því að Facebook er way cooler! ;) hehe..

En hvað segiði? Sumarið búið?  Neinei mánuður eftir..  fokk verður maður að nýta hann..

 

Síðan er maður að koma sér í form eftir arfaslakt sundtímabil síðast þar sem maður náði ekki inní smáþjóðaleika liðið.. en það mun ekki gerast aftur (vonandi) :) hehe..
Hlaup og hlaup og hjóla og grænmeti.. það er það heitasta í dag hjá mér..   kem góður undan sumri..

 

Annars segi ég bara áfram Keflavík á móti FH á laugardaginn..  við skulum alls ekki leyfa skagamönnum að vera fyrir ofan okkar á töflunni..!! allir aðrir en þeir!

 

Kem fljótt aftur..  Cya.. 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 13:02:25 / HilmaR..!

Heitur í Prófum..

Held að þessu spurning brenni á vörum allra..!

AFHVERJU ER ALLTAF GOTT VEÐUR ÞEGAR MAÐUR ER Í PRÓFUM????

 

Óþolandi.. í stað þess að vera að spóka sig í sólnni úti, hlaupandi eða annað þá er maður INNIPÚKI dauðans og situr í stólnum við skrifborðið kl 12,58 á þriðjudegi að LÆRA AÐFERÐARFRÆÐI.. Og maður þarf að horfa útum gluggan og sjá sólina skína!! :(

 

   

 

 

 

AHH Sumarið er að koma.. Vííí ..! :D 


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 23:09:16 / HilmaR..!

Top Gear

Ég segi einsog er... ég er ekki að nenna að vera með eitthvað blogg lengur.. eða allavega ekki í augnablikinu..

 

Það sem ég er aðalega að gera núna er að læra læra læra og synda.. :) nei nei.. ég hlýt nú að gera meira en það..??  Uhmmm.. :$

 

Jújú ég er oft hjá henni írisi minni og reyni að hitta félagana.. einu sinni..

það sem er framundan er að skila heimaverkefni 2 í tölfræði.. halda fyrirlestur um rottuna mína hann Þef-finn (Sniffy) í Greiningu og mótun hegðunar.. hljómar ótrúlega leiðinlegt.. en þetta er bara rosalega heillandi námsefni.. læra að móta hegðun fólks með ýmsum verkefnum.. ótrúlega skemmtilegt..

Síðan er það aðal málið næstu helgi.. Íslandsmeistaramótið í 50m laug..   búinn að æfa rosaegla vel.. er í ágætu líkamlegu formi.. og ég er bjartsýnn.. :)

En að öðru..  ég og íris erum að pæla að fara út í sumar.. shit hvað mig hlakkar til!
Við erum að pæla í Tyrklandi eða Portúgal.. eða hún aðalega :D hehe.. æðisleg stelpa:D
ég hef ekki alveg tíma í að pæla mikið í þessu núna en hún skilur það ;) hehe..

En ég viet ekki.. ég hef nú ekki mikið að segja á þessari stundu..
Kannski að ég fari að kíkja meira hingað sjálfur og gera eitthvað..

 

En ég verð að koma að einu..  Þeir sem þekkja þetta mál, þá hljóta þeir að vera sammála mér.. 

Þegar þessi fermingar smáralindar bæklingur kom út og ég sá hann horfði ég á stelpuna og hugsaði.. Wow! það er komið að fermingum!  ég.. ég hugsaði þetta.. :) ungur strákur..

Þurfti ekki eitthver kona útí bæ, sem ég segi með sorg í hjarta er í Háskóla Íslands, að koma með þá yfirlýsingu að þetta minnti hana á klámstellingu!!! að það væri að taka stelpuna að aftan og að hún væri að bíða eftir skaufa uppí munninn á sér! þetta stóð á síðunni hennar sem ég skoðaði, kolbeins.blog.is (það er reyndar búið að taka færsluna niður). en mín spurning er hvað í fjandanum er hún að skoða á daginn?!?  að hugsa þetta um 14 ára gamla stelpu er FÁRÁNLEGT!! og hún á að skammast sín! SKAMM SKAMM.. hehe..    Hálviti!! 

Jæja þá hef ég komið þessu frá mér...  

Have fun in life.. 


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 12:45:38 / HilmaR..!

Upp Bratta Brekku..

Það hefur kvarlað að mér á síðustu dögum að hætta þessu bloggi því ég hef einfaldlega ekki tíma..
En kannski ætti ég allavega að klára þessa ferðasögu mína svo ég skilji ykkur 3 sem skoðið þessa síðu, nema að það sé bara fólk sem rekst óvart á síðuna og kemur aldrei aftur ..

Anyway þá náðist þetta að reddast með flugið mitt eða flugin sem urðu 3 talsins :) Það fyrsta var með Hollensku flugfélagi sem heitir Martin Air áleiðis til Amsterdam og ég náði SÍÐASTA sætinu í vélinni og það átti að fara þann 1.júní

Ég fór uppá flugvöll með taxa og beið í röð eftir að tjékka mig inn og þegar ég var að bíða fattaði ég alveg skelfilegann hlut, kannski það sem ég ætti að hafa minnstar áhyggjur af, en ég gleymdi súperman derhúfunni minni í Taxanum :(
Jæja, það var ekki að gráta hana.. heldur tjékkaði í mig inn á Mexíkó flugvelli og beið eftir vélinni, ég beið nú ekki lengi í 40mín eða svo..

Jæja þá lagði ég af stað í 9 TÍMA flug! það allra lengsta sem ég hef setið í einu.. jæja ég sat nú við hliðiná viðkunnalegri konu og ég spjallaði eitthvað við hana og skiptumst á ástæðusögum fyrir veru okkar í Mexíkó.. :)
Ég sá það mér til mikillar gleði að í vélinni var boðið uppá video tæki sem þú varst með bara hjá þér og horfðir á..! með fullt af þáttum og bíómyndum.. kallinn pantaði eitt svoleiðis fyrir skít og ekkert.. Og það bjargaði öllu.. eftir nokkra Friends þætti og Finding Nemo og kvöldmat lagði ég mig í 2 tíma minnir mig... um miðja nótt fór ég að horfa á einhverja kellinga mynd með Jennifer Aniston og Kevin Costner.. eftir hana horfði ég á Charlie and the Chockolatefactory en ég náði ekki að klára hana því við vorum við það að lenda! þá fattði ég eitt.. ég hafði ekki staðið upp úr sætinu mínu í 9 tíma! ótrúlegt! :D

Eftir lendigu á Schiphol (flugvöllurinn í Amsterdam) fór ég að tjékka með farangurinn því hann átti bara að skila sér alla leið sjálfkrafa.. jújú það átti nú að gerast.. Ég sá það síðan að ég myndi sitja í næstu vél frá France Air í Business Class þannig ég fékk mér Burger King og fór svo að tjilla á business lounge-inu með öllum viðskiptaköllunum sem gerðu ekki annað en að öskra í síma eða pikka á fartölvu.. ég, í stuttbuxum og stuttermabol sem á stóð Beer is good for you, sat og hlustaði á iPod :)

EFtir hvítvínsglas og stutt flug frá Amsterdam til Parísar var ég kominn til Frakklands loksins.. :) Þaðan fór ég áleiðis til Montpellier og þar kom taskan mín EKKI..! hún varð eftir í Amsterdam..!

En gáfumennið ég hafði nú sett nokkur föt í aðra tösku sem kom með sundhópnum mínum til Frakklands.. Ég settist uppí rútu og frá flugvellinum lá leiðin niðrí bæ til að taka bláu götulestina og voru 2 svartir strákar (frakkar) sem hjálpuðu mér að komst niður á lestarstöð :) Það var EINN gamall kall að afgreiða og ég beið í röð heillengi.. loks náði ég að kaupa mér miða og hljóp að lestinni sem var við það að fara.. Ég var á leiðinni þarna frá Montpellier til Perpignan.. :) loks stöðvaðist lestin, ég fór út og tók Taxa í 10 mín til Malibu Village i Canet Frakklandi..

LOKSINS LOKSINS :) ég var kominn á hótelið sem ég myndi gista á næstu 2 vikur með sundliðinu og keppa og æfa.. :)
Þetta ferðalag tók um 1 og hálfann dag og ansi marga kílómetra og 2 heimsálfur og 3 lönd :)
Vonandi skilst þetta.. Bunaði þessu bara útúr mér :)

Kveðjur.. Heimshornaflakkarinn
Hilmar Sig..
Kort af Frakklandi.. eftir flugin.. tók ég lest frá Montpellier til Perpignan og þaðan Taxa til Canet..

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 00:30:47 / HilmaR..!

Annar Hluti :)

Þennan dag var lagt af stað uppá flugstöð og helt í sig nokkra kalda og farið í fríhöfina og keypt sér ópal og eitthvað fyrir flugið..

Við flugum með Miami Air, sem skildu að þetta voru útskriftanemar og áhöfnin hegðaði sér í samræmi við það. Við millilentum í Maine hjá New York og héldum svo áfram áleiðis til Cancun.. áður en við lögðum af stað ákvað ég í samræmi við Ómar hjá ferðaskrifstofunni sem við notuðum að kaupa farmiðann til Frakklands frá Mexico og Ómar lofaði að hjálpa mér með þetta..

Anyways.. þegar við lentum í Cancun var ENGINN Ómar með í ferðinni! Me in deep shit :) En þegar við loksins komum á hótelið var tekið á móti okkur með drykk og fíneríi :) Það var algjört æði að sitja við laugina kl 22 að kvöldi í 20°hita með fríann bjór í hendi :)

Himnaríki á jörðu..

En Margt var hægt að gera í Mexico :) hótelið okkar var staðsett á ströndinni, og ekki hægt annað en að fara á ströndina, með bjór í hendi, og slappa verulega af eftir 4 ára "streitu" í FS :D haha.. :lol:

En ég átti alltaf eftir að kaupa mér flugmiða til Frakklands.. og á ég átti bara pantað 8daga á hótelinu.. :p En við fórum í margar ferðir í Mexico og fyrsta var farið að skoða pýramída Azteca sem var nokkuð gaman en aðeins of heitt :) hahah og ég keypti styttu sem var síðan 10dollurum ódýrar neðan í brekunni :)
Þegar heim var komið var haldið á barinn að drekka frítt :D
Framhald næst.. :)

En þá er komið að næstu þáttaröð hjá mér sem ég ætla að segja frá og dæma.. :) og ég hef valið að tala um Grey's Anatomy.
Ég reyndar hef ekki séð 1.seríuna þannig ég veit svona nokkurn veginn hvernig þetta byrjaði held að ég þurfi ekki að fara djúpt í þættina því mig grunar að þessir þættir eigi ansi marga aðdáendur hérna á Íslandi.. :)

Allavega þetta fjallar um 5 læknanema Í Seattle og líf þeirra sem læknanema og öllu sem því fylgir ástir, mistök og gleði... 2. Sería er bara algjör snilld.. og endar á dramatískan hátt.. og erfitt varað bíða eftir 3. seríu en ég er það heppinn að ég er aðeins á undan stöð 2 og 9.þáttur sem ég horfði á í gær er TÆR snilld..!!
Ég vildi ekki blikka auga í hræðslu við að missa að einhverju, reyndar var þátturinn mjög erfiður að horfa á .. segi ekki meira.. :D hehe

Anyway þá get ég ekki beðið eftir 10þætti.. :p Allt eru þetta lítt þekktir leikarar, en smá trivia hérna, eða það sem sumir vita ekki..
*Ellen Pompeo eða Meredith Grey er fædd 1969 sem gerir hana 37 ára, hún er elst af lærlingunum..
*Hún lék í einu FRIENDS þætti (TOW the stripper cries)
*Isaiah Wasinghton, Preston Burke, átti upphaflega að leika Derek Shepard *Persónan Alex Karev átti ekki að vera í þáttunum
*þátturinn átti að heita "Complications"

Grey's Anatomy fær fullt hús eða ***** stjörnur :) því ef þú ert ekki að horfa á þættina, þá ertu að missa af miklu..! ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 22:20:03 / HilmaR..!

Fyrsti Hluti.. :)

Ég ætla að segja ferðasögu mína frá ferðum mínum um hálfann hnöttinn í sumar..

Þetta byrjaði allt þegar við félagarnir, Ég, Gummi, Maggi og Erlingur ákváðum að skrá okkur í aðalinn, sem er fólk sem hefur lokið meira en 100 einingum og ætlar að fara í "útskriftarferðina" þó að fólk sé ekki að útskrifast þá getur það farið í þessa ferð. í janúar hóst þetta allt, við bjuggum til heimasíðu, www.blog.central.is/adallvor06 til þess að auðvelda okkur að koma skilaboðum á milli. í hópnum voru u.þ.b. 20manns :)

Við söfnuðum peningum með því að selja kökur, héldum '70s ball, „lærðum“ í sólahring og bjuggum til aðalsblað með auglýsingum. Loksins kom að því, 24 maí rann upp, dagurinn sem við fórum til Mexico :) en ég náttúrlega þarf að búa til vandræði, hehe.. ég ákvað að vera bara til 1 júní og fara þaðan til Frakklands til þess að keppa með félagsliði mínu á alþjóðlegri mótaröð í Canet, Frakklandi. Framhald næst.. :)

En ég er að pæla að byrja á nýjum lið hérna.. :p
ég er mikill áhugamaður á þáttaröðum þannig ég er að pæla að segja frá og meta hina ýmsu þáttaraðir.. :) Og ég ætla að byrja á LOST..

Ég sá auglýsingarnar á stöð 1 en ég hafði litla trúa á þessum þáttum :/ en svo var ég að heyra frá hinum og þessum hvað þetta væri spennandi þættir.. ég hafði fyrir nokkru náð í fyrsta þáttinn en aldrei nennt að horfa á hann.. þannig ég sló til að horfa á pilotinn.. og ég varð agndofa! :) ég náði í alla þættina sem voru komnir og gat bara ekki hætt að horfa :D
allur minn frítími fór í þessa þætti :p Svo kláraðist þáttaröðin og ég beið spenntur eftir næstu.. svo kom hún og ég varð fyrir smá vonbrigðum.. því mér fannst þeir ekki hafa fylgt þræðinum alveg eftir.. en gat samt alveg horft á hana.. síðan er 3serían í gangi núna og fyrstu 7 þættirnir hafa lent mjög vel hjá mér.. :D

LOST fær *** stjörnur af 5 þeir missa eina stjörnu vegna seríu nr 2 :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 13:59:47 / HilmaR..!

Ferðasaga...

Ég ætla að fara að koma með eina sögu hérna.. en það er ferðasaga frá þegar ég fór frá Íslandi til Mexico til Hollands til Frakklands til Íslands :) þvílíkt ferðalag og hef ekki skemmt mér jafn mikið á ævi minni :) en hún kemur örugglega í nokkrum hlutum ;) en hún kemur fljótlega..



» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 19:52:27 / HilmaR..!

Gudjohnsen..

Já ég ætla að gerast merkilegur og tileinka þessu bloggi frænda mínum, honum Eiði smára..
er ekki náskyldur honum en ég get tekið upp nafnið Guðjohnsen því amma mín heitir það :)
En allavega aðal ástæðan fyrir að ég er að skrifa um hann er því ég las í fréttablaðinu í morgun að hann hafi fengið slæma dóma fyrir leikinn á móti Real Madrid..

Mér finnst það einkennilegt að hann skuli fá svona mikil tækifæri og er í byrjunarliðinu leik eftir leik, eða náttúrlega núna uppá síðkastið því Samuel Eto'o er meiddur..

Eiður er náttúrlega frábær spilari og á það alveg fullkomlega skilið að vera í Barcelona, tek það ekki frá honum.. en mér finnst núna einsog að Frank Rijkaard, framkvæmdarstjóri Barcelona, sé að hafa hann inná bara til þess að sjá hvænar hann bregst.. Þó hann sé góður, er hann ekki bestur í heimi.. Javier Saviola er frábær fótboltamaður sem og Lionel Messi.. en einsog í leiknum á móti Real þá átti Eiður ekki góðann dag.. get samt alveg trúað því að hann sé þreyttur.. mikið búinn að spila undanfarnar vikur 8)

en það sem er pointið hjá mér er að nú hefur Eiður fengið slæma dóma og núna hefur Rijkaard ástæðu fyrir að taka hann út.. áður var hann gagnrýndur fyrir að kaupa hann en ekki leyfa honum að spila.. mín skoðun er að setja hann á bekkin í næsta leik.. leyfa honum að ná tökum á spænska boltanum.. sem er mjööög frábrugðari þeim enska.. og leyfa honum að komast inní liðið.
.

Annars er hann búinn að eiga frábært tímabil hingað til.. ég meina hann er búinn að skora eitt mark, á móti Celta, flott mark btw.. og síðan skoraði hann eitt á móti einhverju Mexikósku liði.. ég meina við getum miðað við það að mesti markaskorari í Evrópu, Shevchenko er bara búinn að skora 2 mörk fyrir Chelsea og var hjá sálfræðingi vegna markaþurrðarinnar!!!
Ég held að Eiður eigi eftir að brillera seinna á tímabilinu.. hlakka til.. :)

En þá er spurningin... á ég að taka upp nafnið ?? :lol:

Hilmar Pétur Guðjohnsen??? ;)
Endilega segið ykkar skoðun..

» 15 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 23:00:30 / HilmaR..!

...

Best að koma með eitt blogg..:D

Eins og ég sagði áðann er ég bara buinn að vera að læra sem er ágæt :lol: þar sem e-h verður að vera þarna inni...:D

Er búinn að vera MJÖG upptekinn sem skýrir þessi bloggleysi :^)

Fór til Vestmanneyjar þar síðusta helgi..það var bara fínt...var reyndar ekki að keppa var bara að æfa :D heði samt mikklu frekar viljað vera hjá Írisi ;*

Var að kaupa mér geggjaðann bíl 8) Nýjasta yarisinn..:P helvíti nettur...eins og eigandinn8)

ég skal reyna að vera duglegri að blogga..:S er ekki allveg að standa mig í þessu, er nefnilega orðinn svo fullorðinn þú veist, kominn í háskóla og allt.


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 17:31:01 / HilmaR..!

;D


Kemur nýtt blogg bráðum..er á kafi í heimalærdómi :S

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 22:29:58 / HilmaR..!

Jæja jæja..

Sælt verið þið..

ég hef ekki verið mjög aktívur hérna undanfarið en það er bara því ég hef verið að byrja í skólanum og síðan hefur tölvan mín verið í miklu fokki. :/

ÉG byrjaði í Hí í byrjun september í Sálfræði.. það er alveg ágætt.. bara versta er að ég kemst ekki oft á æfingar í keflavík.. :( þannig ég ætla að reyna að æfa sjálfur hérna í garðabæ eða hafnarfirði..

uu síðasta sem ég man eftir skemmtilegu var ljósanótt.. mætingin var heima hjá félaga mínum um 9 leytið eftir nokkra bjóra og amoretto skot þá lá leiðin niðrí bæ að horfa á flugeldasýninguna og eitt orð.. wow.. hörku sýning.. auðvitað þarf reykjanesbær alltaf að toppa alla :)

síðan var haldið aftur til félaga míns þar sem aðeins var meira af skemmtilegheitum :) þá eftir það var farið nirðí bæ..

Síðan fór ég á leikinn um daginn Ísland - Danmörk.. mér hefur aldrei langað meira að drepa dómara svona mikið.. og línuvörðinn.. hann var nú verri en hitt fíflið.. rússa helvíti..

skólinn minn er fínn ég byrja á mánudögum kl. 10 þriðjudögum kl. 15 miðvikudögum kl. 11.40 fimmtudögum kl. 15 en síðan á föstudögum er frí.. :)
þaðer samt ekkert spes að byrja svona seint því þá er dagurinn farinn :/ erfitt að komst á æfingar..
En jæja ég man ekki eftir meiru að segja
bið að heilsa..
Hilmar..

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 22:56:05 / HilmaR..!

Leti..

Ég er svo lítið heima einsog er..

þannig ég blogga þegar ég byrja í skólanum... :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6